Description

N 2972C005AA

Canon EF-EOS R Control Ring breytistykkið er einstök hönnun til að nota allar EF og EF-S linsur með Canon EOS R spegillausu myndavélinni.

Þetta háþróaða breytistykki er búið sérhönnuðum stjórnhring, controlring, sem er sams konar þeim sem er á RF linsum þannig að þú getur stillt t.d. ISO og ljósop.

Hringurinn á breytistykkinu veitir áþreifanleg viðbrögð þegar honum er snúið þannig að það er auðvelt að þekkja og stjórna þínum stillingum.

Heldur einnig fullum sjálfvirkum fókus og hristivörn og inniheldur enga optíska eiginleika þannig að þú heldur upprunalegum optískum gæðum þeirrar linsu sem þú ert að nota hverju sinni.

Er ryk- og vatnsvarið og hægt að nota við erfið veðurskilyrði.